Um Okkur
GRILLANDI GOTT!
Á Grillhúsinu tökum við brosandi á móti þér. Okkar fremsta markmið er að bjóða upp á einstaklega góðan mat og frábæra þjónustu á hagstæðu verði. Okkar von er sú að þegar gestir hafa notið þess að borða hjá okkur hlakki þeir til að koma aftur.
Matseðillinn okkar er fjölbreyttur og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem maginn er sólginn í létta og ferska rétti, gómsæta hamborgara eða safaríka steik.
Við vitum að grunnurinn að góðum mat er gott hráefni. Því vöndum við sérstaklega valið og veljum aðeins það ferskasta sem fæst hverju sinni. Allt er síðan lagað á staðnum svo úr verði frábær máltíð.
Í hádeginu er boðið upp á sérstakan hádegismatseðil þar sem er að finna gómsæta rétti á hagstæðu verði. Við erum eldsnögg að afgreiða réttina og súpa fylgir frítt með.
Grillhúsið var fyrst opnað árið 1994 á Tryggvagötu í Reykjavík. Í dag er Grillhúsið starfandi á tveimur stöðum: Bústaðavegi 153 í Reykjavík og Brúartorgi 6 í Borgarnes.
Hlökkum til að sjá þig!